HomeAbout usHorsesServicesContactLocationÞingeyrarLinksSweaters
30.01.2010 - Komið heim úr fyrsta rekstri vetrarins


Þá er búið að fara í fyrsta rekstur vetrarins og gekk eins og í sögu. Allir hestar samvinnuþýðir og enginn reyndi að snúa á okkur og verða eftir eins og stundum vill gerast, allavega með þá eldri sem þekkja rútínuna og vilja alveg eins vera heima að slappa af eins og að hlaupa í algjöru tilgangsleysi á milli bæja. Eins og venjulega svona framan af vetri þá var farið í Sveinsstaði en það er svona sirka 12 km. fram og til baka - ágætt skokk svona snemma á þjálfunartímanum og svo gott frí yfir helgina, bæði fyrir tamningakonur og hesta. Nú er bara að sjá hvor vinnur bæjarkeppnina í ár, Sveinsstaðir eða Þingeyrar með því að koma í fleiri rekstra af fyrra bragði.......

.......ÓLI þú skuldar okkur einn bjórkassa!!!

 

Christína með gæludýrin sín Mugga og Kötlu

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is