 Það er ekki að sökum að spyrja með nútíma tækni og samgöngur - Roði var hér á þriðjudag og kominn til Sviss á miðvikudag, búinn að eignast nýja flölskyldu í nýju landi. Hann var heppinn hann Roði, fékk heimili hjá fjögurra manna fjölskyldu þar sem hann á að vera reiðhestur allra í fjölskyldunni. Þau eru líka heppin, þar sem Roði er einstaklega fallegur, auðveldur og ganggóður hestur sem lætur lítið hafa fyrir sér.
Við óskum Vreni og fjölskyldu innilega til hamingju og þess að Roði eigi fyrir höndum gott og farsælt líf í nýju landi og að þau eigi eftir að njóta hans vel og lengi. Roði er undan Funa frá Vindási og Joddu frá Enniskoti. |