HomeAbout usHorsesServicesContactLocationÞingeyrarLinksSweaters
23.02.2010 - Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

Það er til marks um traust og gott samband á milli manns og hesta þegar ró og friður ríkir í hesthúsinu. Öllum líður vel og hestar treysta sér til að liggja og sofa jafnvel þó erill sé í kring um þá og verið að vinna. Hér á bæ kemur það oft fyrir að það þarf að byrja á að vekja gæðingana af værum blundi þegar til stendur að fara á bak og biðja þá vinsamlegast að rísa á fætur. Á myndinn er  Fregn Flygilsdóttir ásamt þjálfaranum Christínu og spurning hvort þær ákveða bara að leggja sig bara saman eða rísa á lappir og fara í reiðtúr út í vetrarríkinu sem hér ræður öllu þessa dagana. Ísinn í einu orði sagt stórkostlegur og reiðfærið einstakt....en það verður að viðurkennast að puttarnir verða stundum aðeins kaldir......allavega á gömlu konunni á bænum.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is