 Það tókst ekki að ná mynd af tvíburafolöldunum saman þennan daginn en hér kemur ein af Dimmalimm með örverpinu henni Þumalínu sem þessa dagana minnir á furðuskepnu úr grárri forneskju, kafloðin, stuttfætt og afar lágfætt líka. En það má þó telja vel af sér vikið að þetta litla kríli sem aðeins vó 14 kíló við fæðingu skuli hafa braggast svo vel sem raun ber vitni og hún gefur sko ekki sitt eftir í hrossahópnum. Tvíburarnir sjúga báðir ennþá mömmu sína og eru hin sprækustu, óvenju spök og örugg með sig enda meðhöndluð þónokkuð síðastliðið sumar. Nú er bara að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir þessi systkyni sem sanna það svo ekki verður um villst að: "margur er knár þó hann sé smár"!! |