HomeAbout usHorsesServicesContactLocationÞingeyrarLinksSweaters
04.03.2010 - Tannadagurinn mikli

Í gær var tannadagurinn mikli haldinn hér á bæ. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir mætti á svæðið og farið var upp í flestalla hestana í hesthúsinu, allavega þá sem hægt var að koma á múl. Sá elsti sem var skoðaður var hann Vinur sem er 26 vetra, kominn með aðeins slitnar tennur vegna aldurs en að öðru leyti með stálsleginn og heilbrigðan munn, varla tannstein að sjá í þeim gamla. Skoðað var upp í öll hross með ljósi þannig að hægt var að sjá vel innan í munnholið og sum deyfð og röspuð ef á þurfti að halda en mörg hrossanna þurftu litla eða enga meðferð. Nokkrar úlfstennur komu í ljós, flestar í ungu hrossunum svo líkur eru á að þær muni detta sjálfar á næstu mánuðum en ef ekki þá verða þær teknar. Ein úlfstönn fannst í eldri hesti (7vetra) en sá er góður í beisli og verður séð til með hvort tönnin verður tekin. Þetta var afar fróðlegur dagur og gaman að kíkja svona í munna hrossa sinna en af því má margt læra. Spáð var í mél og múla og samdóma álit að sennilega er allt of lítið framboð á hentugum mélum upp í íslenska hestinn og almennt notuð of löng mél.

Kærar þakkir Systa sem miðlaði til okkar miklum fróðleik um munn hestsins, líffræði hans og æskilega meðferð.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is