Smá ferð til FrakklandsHvatinn að þessum skrifum er myndin hans Halldórs sem birtist í mogganum í gær. Hreint út sagt dásamlega fyndin. Sjá mynd hér síðast í pistlinum. Hér á heimilinu eru nefnilega tveir synir, annar er að læra grafíska hönnun og þykir vænt um tölvuna sína, teiknar vel og tekur flestar af hinum frábæru myndum hér á heimasíðunni, það er hann Helgi Hinn er verkfræðingur og mikill “útiverkamaður”, sem líður best í eihverju ati og stórframkvæmdum það er hann Andri. Mér varð hugsað til þessara yndislegu sona minna þegar ég sá þessa mynd hans Halldórs í mogganum og um leið til hellaristanna í Lacraux í Frakklandi en þar má sjá einar fyrstu fornminjar sem tengast þróun tegundarinnaar “equus” eða hestsins og gefið hafa vísinda og fræðimönnum innsýn í það hvernig hestar litu út fyrir árþúsundum og hvernig þeir voru notaðir....sem sagt til átu. En á skopteikningu Halldórs má sjá listamann fyrir 16.000 árum teikna hina frægu Lacraux hesta.
Hellarista frá Lacraux>
Hellarnir í Lacraux, eru undurfallegir og mikið myndskreyttir og sýna ævafornar hellaristur af hestum og mörgum fleiri dýrum. Hellaristurnar eru taldar vera um 16.000 ára gamlar. Hellarnir voru uppgötvaðir árið 1940 af fjórum unglingum sem voru á ferðalagi og opnaðir almenningi árið 1948 en var lokað aftur árið 1963 þar sem hin mikla umferð ferðamanna hafði tærandi áhrif á hellaristurnar og þær voru farnar að láta á sjá.
Hlutar hellana voru þá endurgerðir á öðrum stað og opnaðir almenningi árið 1983 u.þ.b. 200 metra frá hinum upprunalegu hellum sem hafa verið varðveittir og endurgerðir af sérfræðingum og í dag er einungis örfáum aðilum hleypt inn í hellana og þá einungis í þeim tilgangi að varðveita þá.
Í hellunum er að finna um 2000 myndir flestar af dýrum, mönnum og táknum. Fyrir áhugafólk um hesta og sögulega þróun þeirra á er fróðlegt að vita að flestar teikningarnar eru af hestum, eða um 364. Rannsóknir og kenningar síðustu áratuga hafa benda sumar til þess að hugsanlega sé um stjörnukort að ræða enda hægt að tengja sum táknin og myndir við sókerfið og stjörnumerki þess. Aðrir fræðimenn eru með þær kenningar að um sé að ræða táknmyndir sem urðu til við trúarlegar athafnir og ofskynjanir, hugsanlega tengdar transdansi eða dáleiðslu. Talið er að hesturinn sé á þessum tíma ennþá veiðibráð en menn ekki farnir að nota hann til reiðar eða vinnu. Hestarnir eru stuttfættir og belgmiklir, með stutt strítt fax og bleikálóttir að lit. Þeir eru þarna sýndir með öðrum veiðidýrum s.s. nautgripum og buffalo.
Það er gaman að fara inn á heimasíðuna sem bent er á hér í svarta kassanum á forsíðunni og fylgja myndavélinni inn í hellana sem eru í senn dularfullir og heillandi. Endilega farið í ferðalag um Lacraux.

|