 Þegar verið var að skoða munna og tennur hrossa hér á miðvikudaginn þá voru hundarnir að sniglast í kring um okkur eins og alltaf þegar einhver er í hesthúsinu. Hún Tása hefur þróað með sér þann eiginleika sem menn hafa það er að segja að brosa þegar hún er glöð og fær athygli. Mörgum bregður í brún og halda að hundspottið sé að urra og ætli sér að bíta en það er sko öðru nær. Svona sýnir hún gleði sína og ánægju. Á hundanámskeiði fyrir mörgum árum lærði undirrituð að næmir hundar sem eru mikið með fólki þrói með sér þennan eiginleika að "brosa" eins og mannfólkið þó svo að það sé þeirra náttúrulega eðli að sýna tennur á þennan hátt þegar þeim er ógnað eða þeir þurfa að verja sig. Sem sagt búið að snúa hlutunum algjörlega á hvolf...en sæt er hún og tennurnar mjallarhvítar eins og hjá frægri kvikmyndastjörnu sem er nýkomin úr rándýrri tannahvíttun. |