ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
« Hestar til sölu »
Þraut frá Þingeyrum

Þraut er steingrá 6 vetra hryssa undan Flygli frá Leirárgörðum og Tíbrá frá Stóra Ármóti. Þaut er afar taugasterk og traust hryssa með góðar gangtegundir og á mikið inni. Hún er mjög hreingeng á öllum gangtegundum, stekkur jafnt og vel upp á báðar hendur, er stórstíg á brokki og töltir alltaf í hreinum takti og með góðum fótaburði. Þraut er í góðri framför og bætir sig stöðugt, jafnt og þétt. Hún er frekar stór og mjög sterkbyggð með frábæra fótagerð og fallega byggð. Þraut er mjög skemmtilegt reiðhross sem með meiri þjálfun á fullt erindi í keppni eða sem ræktunarhyssa eða bara sem frábært reiðhross fyrir hvern sem er. Þraut er mikið tamin miðað við aldur og í góðu þjálfunarástandi. Frábært tækifæri til að eignast auðvelt og vandamálalaust hross sem gaman er að ríða.  Þraut hefur verið dæmd fyrir byggingu og hlaut 8.20 í einkunn þar á meðal, 8,5 fyrir háls og herðar, bak og lend og samræmi.







back-infobase
Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is