ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
16.06.2010 - Má ég líka vera alvöru blóm

Á vorin hefst baráttan við fíflana og sóleyjarnar sem allt þekja hér á bæ þegar hlýnar í veðri. Víst eru þetta falleg blóm og síst ljótari en þau sem maður setur í þar til gerða potta til að punta aðeins til í kring um bæinn. En kannski full frek til plássins stundum. En þessi túnfífill var ekki með neina minnimáttarkend í gær þegar hann breiddi úr sér í sólinni með fínu blómunum í blómapottinum. Svona eins og boðflenna í fínu boði. Allavega þá var ekki hægt að standast mátið að taka mynd af honum svona líka montnum í sínu besta pússi um hábjartan daginn - skærgulur- með bleiku blómunum.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is