 Hann Vökull okkar á nokkur afkvæmi hér og þar þrátt fyrir að vera hvorki sýndur eða dæmdur stóðhestur í fremstu röð. Í Litla Dal hjá Sigurbjörgu og Svavari eru til nokkur snotur tryppi undan honum og í síðustu viku var lagt í góðan og mjög skemmtilegan labbitúr að skoða þessi börn hans Vökuls sem hann bjó til áður en hann komst til vits og ára sem taminn hestur. Tryppin bera flest svip hans að einhverju leyti - eru faxprúð og fríð og hreyfa sig lipurlega eins og pabbinn. Allavega virðist vera nóg tölt til staðar enda er það hans besta gangtegund þó svo brokk og skeið séu líka í góðu lagi.



|