 Það er ekki alltaf verið að fara langt frá hesthúsinu til að leggja sig. Þegar komið var úr hádegismat í gær hafði Ölur sem hún Christína á núna lagt sig beint fyrir framan hesthúsdyrnar og í smá stund fékk maður hland fyrir hjartað og hélt að eitthvað væri að en svo reyndist þó ekki vera sem betur fer. Hann steinsvaf og hraut með hausinn á gúmmimottunni við þröskuldinn inn í hesthúsið. Tása fylltist áhyggjum og er engu líkara en að hún sé að spyrja hann hvort ekki sé allt í lagi. Það hljóta allavega að vera meðmæli með starfseminni í hesthúsinu að hrossin skuli ekki taka á rás í burtu þegar sprett er af þeim heldur ákveða að leggja sig við hesthúsdyrnar. |