ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
05.07.2010 - Staðfest fyl í nokkrum hryssum

Það er alltaf ákveðinn léttir þegar búið er að halda hryssum og staðfesta að þær séu fengnar. Þó það geti svo brugðist eins og allt annað í lífinu. En nú þegar eru staðfest fyl í flestum hryssum búsins, meðal annars undan tvö undan Sólon frá Skáney, eitt undan Kappa frá Kommu, eitt undan Stála frá Kjarri og eitt undan Stíganda frá Stóra Hofi. Ein hryssa er óköstuð og óákveðið með hest fyrir hana en tvær eru enn hjá hestum, Arði frá Brautarholti og Orra frá Þúfu. Svo eru nokkrar í áskrift hér heima hjá Vökli frá Sæfelli en verður ekki haft áhyggjur af því fyrr en í haust hvort þær hafa haldið eða ekki. Mesta spennan er að sjálfsögðu hvort Freyju gömlu tekst að fá höfðingjann Orra til við sig enda töluverðu til kostað til að svo megi verða.

Á myndinni er lítil hryssa undan Völki frá Sæfelli og Mirru frá Snjallsteinshöfða.

back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is