 Þessa dagana eru 2 kettlingar á bænum. Gamla Berta er ótrúlega seig að koma með lítil örverpi af og til þó svo að með réttu ætti hún fyrir löngu að vera komin úr "kettlingaeign". Ómögulegt er að segja hvar hún hittir sjarmörana sem feðra þessi börn hennar en varla eru það nú miklir riddarar þar sem þeir láta hvorki sjá sig né heyra nema rétt á meðan sú gamla er til í tuskið og þá aðallega til að stela mat frá henni. Garpur er afar áhugasamur um þessi litlu væludýr og fékk að skoða kettlingana á dögunum þegar þeir fóru i sinn fyrsta göngutúr á gólfinu í gamla hesthúsinu. Sá stutti var ekki á því að láta Garpinn koma of nálægt og hvæsti eins og hann ætti lífið að leysa ef komið var of nálægt. Ef einhvern langar í ljótan og úfin kettling þá eru hér 2 til boða!

|