ForsíðaUm okkurHestarÞjónustaSambandStaðsetningÞingeyrarTenglarPeysur
26.07.2010 - Margt að gerast á stóru heimili

Þegar of mikið er að gera í sveitinni þá verður uppfærsla á heimasíðunni oft útundan og svo hefur verið upp á síðkastið. Gestagangur hefur verið óvenjumikill á heimilinu bæði af vinum og vandamönnum og "túristum" sem alltaf láta sjá sig þó að í minna mæli sé í ár en oft áður. Heyskapur er yfirstaðinn, tryppastóð komið á fjall, margar hryssur komnar heim frá stóðhestum og búið að temja og vinna helling í hesthúsinu. Og síðast en ekki síst þá fæddist loksins síðasta folaldið á bænum - stórmyndarlegur jarpur hestur undan Tíbrá og Sveini Hervari frá Þúfu. Kíkt var á hryssuna kl. 22 að kvöldi, ekki hægt að sjá að folald væri að koma,....labbað heim og kíkt á hana kl 22:30 og þá var fæddur jarpur hestur. Já núna skilur maður af hverju talað er um að hrystur "kasti".....enda var hraðinn á þessarri köstun með ólíkindum. Nú þarf að koma Tíbrá undir góðan hest og úr mörgu spennandi að velja þannig að vandamálið er ekki að finna hest heldur að velja úr öllum þeim góðu hestum sem bjóðast þessa dagana.

Á myndinni má sjá litla Þyt fá sér fyrsta sopann hjá Tíbrá mömmu


back-newsitem

Þingeyrar • Blönduós • IS-541 • Ísland • Sími: 452-4365 • thingeyrar@thingeyrar.is