 "Áseta knapans mótar hestinn" stendur í margri kennslubókinni um reiðmennsku. Á hinn bóginn má einnig segja að "allir hafa sinn stíl" og hér á þessarri mynd má sjá einn, reyndar svolítið ýktan en....hey....það kemur fyrir að þetta sjáist án þess að verið sé að ýkja!! Eftir að hafa alist upp á hestabýlinu Þingeyrum og hlustað á endalausan áróður um reimennsku, ásetu knapa og stjórnun hesta gæti maður samt haldið....eða allavega vonað að synirnir á bænum hefðu tamið sér meira "elegant" ásetu en hann Helgi G Thoroddsen sýnir okkur á myndinni sem fylgir þessarri frétt. Það er allavega ekki bein lína frá eyra, í gegn um öxl, mjöðm og hæl!!! Hins vegar má hrósa knapanum fyrir að þumall er efsti punktur í taumhaldinu. |